HAND1AA05

Titill

Handboltaakademía

Námsgrein Handbolti
Viðfangsefni Tækni og styrkur
Skammstöfun HAND1AA05
Þrep 1 (AA)
Einingafjöldi 5
Lýsing Afreksíþróttaáfangi þar sem viðkomandi nemendur þurfa að læra grunnatriði í handbolta og styrktarþjálfun
Forkröfur Gerðar verða ríkar kröfur um stundvísi á æfingar, vinnusemi, aga og heilbrigðan lífsstíl. Nemandinn veit að neysla áfengis, tóbaks, vímuefna eða annarra ólöglegra lyfja er ekki umborin. Brot á þessum reglum varðar brottvísun úr handboltaakademíunni.
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu á og tileinki sér:
  • Helstu reglum í handbolta
  • Helstu grunnatriðum og grunnleikskilning í handbolta
  • Grunnþjálfun til þess að standast kröfur íþróttarinnar
  • Setji sér raunhæf markmið á sviði allra þátta er tengjast þjálfuninni
  • Veri hluti af liðsheild sem virkar og skemmtilegt er að vera hluti af
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni til að:
  • Æfa handbolta í hópi nemenda sem stefna á árangur í íþróttinni
  • Framkvæma og framfylgja leiðbeiningum þjálfara án mikillar aðstoðar
  • Sýna andlegan styrk og vitund til þess að ná árangri í íþróttinni
Hæfniviðmið Að þessum áfanga loknum á nemandi að geta:
  • Æft og spilað kappleiki með það að markmiði að stefna á árangur
  • Skilið þörfina fyrir gildi grunnþjálfunnar til þess að standast kröfur íþróttarinnar
  • Sýni þann aga og lífsstíl sem þarf til að ná árangri í íþróttinni
Námsmat Símatsáfangi og verkefnaskil á hverri önn