FRJÁ2BB05

Titill Frjálsíþróttaakademía
Námsgrein Frjálsíþróttir
Viðfangsefni Tækni, styrkur, þol og liðleiki.
Skammstöfun FRJÁ2BB05
Þrep 2 (BB)
Einingafjöldi 5
Lýsing

Afreksáfangi í frjálsíþróttum þar sem lögð er áhersla á einstaklinginn, getu hans í frjálsíþróttum og framfarir. Með vel skipulögðum æfingum er stefnt að því að byggja upp einstaklinga sem hafa alla burði til að ná langt í frjálsíþróttum.

Forkröfur

Að hafa klárað FRJÁ1AA05,  FRJ1BB05 og FRJ2AA05. Áfram eru gerðar  ríkar kröfur um stundvísi á æfingar, vinnusemi aga og heilbrigðan lífsstíl. Nemandi geri sér grein fyrir því að neysla áfengis, tóbaks, vímuefna eða annarra ólöglegra lyfja er ekki leyfð. Brot á þessum reglum varðar brottvísun úr frjálsíþróttaakademíunni. Sérhæfing eykst í greinum.

Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast almennrar þekkingar og skilnings á:
  • Áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
  • Helstu greinum frjálsíþrótta en hann geti valið á milli þess að leggja áherslu á stökk, köst, spretthalup eða langhlaup
  • Fjölbreyttum þjálfunaraðferðum helstu grunnþátta í frjálsíþróttum
  • Keppinslíkum æfingum í frjálsíþróttum
  • Markmiðssetningu út frá eigin getu
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
  • Fjölbreyttri grunnþjálfun í frjálsíþróttum
  • Fjölbreyttri styrktar-, þol- og liðleikaþjálfun í frjálsum íþróttum
  • Að beita mismunandi aðferðum til að meta þol, styrk og liðleika
  • Að auka tæknilega færni sína í frjálsíþróttum
Hæfniviðmið

 Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu sem hann hefur        

 aflað sér til að:

  • Skipuleggja eigin þjálfun í auknum mæli.
  • Meta eigið þol, styrk og liðleika
  • Leysa af hendi verkefni sem eru hvetjandi
  • Að setja sér raunhæf markmið sem tengjast þjálfuninni
  • Tileinka sér þann aga og lífsstíl sem þarf til að ná árangri í afreksíþróttum
Námsmat

Samanstendur af mætingu og virkni ásamt verkefnaskilum.