FRAN2MF05

Titill

FRAN2MF05

Námsgrein FRANSKA
Viðfangsefni  
Skammstöfun FRAN2MF05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing Unnið er með valið efni mismunandi miðla, s.s. útvarps, sjónvarps, dagblaða og tímarita. Einnig er unnið með tónlist, stuttmyndir og kvikmyndir og lesnar bókmenntir. Nemendur kynnast enn frekar menningu málsvæðisins. Lögð er áhersla á alla færniþætti tungumálanámsins: hlustun, tal, lestur og ritun.Áhersla er lögð á að nemendur beri ábyrgð á sínu námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.Áfanginn er á  B1-stigi evrópska tungumálarammans. 
Forkröfur FRAN1DD05
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • grundvallaruppbyggingu þjóðfélaga þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál,
  • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað og geti tengt þau eigin samfélagi og menningu,
  • orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins, þ.m.t. orðasamböndum og þverfaglegum orðaforða,
  • notkun tungumálsins til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins bæði munnlega og skriflega,
  • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls, s.s greinamerkjasetningu.
Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í:

  • að skilja mál sem talað er með mismunandi hreim og við mismunandi aðstæður sem og skilja algengustu orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talað mál,
  • lestri margs konar gerða af textum og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir því hverrar gerðar textinn er,
  • að taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi,
  • að tjá sig skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér og undirbúið,
  • að skrifa margs konar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu.
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni, hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki,
  • skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna, jafnvel um tiltölulega flókið efni, ef hann þekkir vel til þess,
  • tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt,
  • leysa ýmis mál sem upp koma í samskiptum og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður,
  • eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum,
  • tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og beita tungumálinu við margs konar aðstæður,
  • skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín,
  • skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig.
Námsmat

Fjölbreytilegt námsmat.

Allir fjórir færniþættirnir metnir: hlustun, tal, lestur og ritun.

Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd