FÓHE3AU03

FÓHE3AU03 – Fóðrun og heilsa IV – Aðbúnaður og umhverfi

 

Lýsing: Meginviðfangsefni áfangans er að kenna helstu atriði sem hafa ber í huga við almennt hestahald. Hluti námskeiðsins fer fram í hesthúsum nemenda þar sem nemendur eru látnir bera ábyrgð á fóðrun og umhirðu hesta sinna. Úttekt fer fram í byrjun og lok námskeiðs en nemandi heldur skráningu á þjálfun og umhirðu hesta sinna og skilar skýrslu í námskeiðarlok. Á námskeiðinu verður yfir helstu reglugerðir um hestahald og aðbúnað hesta. Farið verður í hvernig huga skal aðstöðu í hesthúsi, s.s. stíustærð, vinnuplássi, viðrunargerði, kaffistofu, fóður- og hnakkageymslu. Farið verður yfir helstu grunnatriði varðandi loftræstingu og lýsingu. Þá verður farið yfir helstu atriði er lúta að hestum í haga, mat á landi, skiptingu stóðs, girðingar, fóðrun og skjól. Farið verður yfir helstu þætti er varða hrossarækt, uppeldi unghrossa og stóðhestahald. Nemendum verða kynnt öryggisatriði og helstu reglur varðandi hestakerrur og flutning á hrossum.

Forkröfur: HEST3ÞG03, REIM3ÞG05, FÓHE2FU03,

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

 

  • reglum varðandi hestahald
  • aðbúnaði hrossa í hesthúsi
  • aðbúnaði hrossa í haga
  • mikilvægi beitarstjórnar og mati á beitarálagi
  • fóðrun hrossa á húsi
  • fóðrun hrossa á útigangi
  • mismunandi gerðum girðinga
  • reglum varðandi girðingar á hrossahólfum
  • reglum varðandi hesthús og umgjörð hesthúss
  • helstu atriði er hafa ber í huga við skipulag á hesthúsi
  • hvað ber að hafa í huga varðandi vinnupláss í hesthúsi
  • hvernig haga skuli geymslu á fóðri
  • helstu atriði er varða loftskipti í hesthúsi
  • helstu atriði er varða lýsingu í hesthúsi
  • umhverfi hesthúss og gerði
  • helstu atriði er varða hrossarækt, uppeldi unghrossa og stóðhestahald.
  • helstur reglum og öryggisatriðum hvað varðar hestakerrur og flutning á hrossum.

 

 

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

 

  • hugsa rétt um hesta, fóðra þá og meta líkamlegt ástand, s.s. holdastig og almennt heilbrigði
  • gera umhverfi hestsins hestvænt
  • meta gæði hesthúss
  • halda hesthúsi með jöfnu hitastigi, hreinu og vel loftræstu
  • setja upp aðstöðu í hesthúsi þannig að vel fari um menn og hross
  • útiloka allar hættur eða slysagildrur sem kunna að skapast í illa hönnuðum hesthúsum
  • halda gerði og ytra umhverfi hesthús í sómasamlegu ásigkomulagi
  • setja upp algengustu gerðir af girðingum og viðhalda þeim
  • meta ástand beitarhólfa
  • skipt upp stóði eftir fóðurþörf hrossa og virðingastigi
  • flutt hross milli staða á öruggan hátt

 

 

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • geta borið ábyrgð á umhirðu hrossa í hans umsjá.
  • geta haldið hesta og fóðrað þá við mismunandi skilyrði í samræmi við gildandi reglugerðir og lög hverju sinni
  • meta beit og beitarálag
  • fóðra hross eftir fóðuráætlun
  • gera umhverfi hestsins hestvænt
  • ala upp ung hross
  • hafa umsjón með stóðhesti
  • flytja hross á milli staða á öruggan hátt

 

Námsmat:

Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.

 

Útgáfunúmer:

 

Skólar:

 

Leiðbeiningar:

 

Fyrirmynd: