FIML1AB05

Titill

Fimleikaakademía

Námsgrein Fimleikar
Viðfangsefni Tækni og styrkur
Skammstöfun FIML1AB05
Þrep 1 (AB)
Einingafjöldi 5
Lýsing Afreksíþróttaáfangi í fimleikum þar sem nemendur vinna áfram við að efla tæknikunnáttu sína í æfingum og grunnfærni í líkamsbeitingu og styrktarþjálfun í þreksal.

Forkröfur FIML1AA05   Gerðar verða ríkar kröfur um stundvísi á æfingar, vinnusemi, aga og heilbrigðan lífsstíl. Nemandinn veit að neysla áfengis, tóbaks, vímuefna eða annarra ólöglegra lyfja er ekki umborin. Brot á þessum reglum varðar brottvísun úr fimleikaakademíunni.
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu á og tileinki sér:
  • Helstu reglum í hópfimleikum
  • Tækniþjálfun í fimleikum í mismunandi stökkum eftir áhöldum
  • Markmiðssetningu út frá eigin getu og framtíðaráætlunum
  • Setji sér raunhæf markmið á sviði allra þátta er tengjast þjálfuninni
  • Umgengni og meðferð tækja í þreksal
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni til að:
  • Æfa fimleika á eigin forsendum og setja sér markmið út frá því.
  • Framkvæma og framfylgja leiðbeiningum þjálfara án mikillar aðstoðar hvort heldur er í fimleika- eða þreksal.
  • Sýna andlegan og líkamlegan styrk og metnað til að ná langt í greininni. 
Hæfniviðmið Að þessum áfanga loknum á nemandi að geta:
  • Hlutað æfingu niður í minni einingar og unnið með hvern tækniþátt æfingarinnar fyrir sig.   
  • Skilið þörfina fyrir gildi grunnþjálfunnar  og mikilvægi endurtekningar til þess að standast kröfur íþróttarinnar og ná betri færni.
  • Sýni þann aga og lífsstíl sem þarf til að ná árangri í íþróttum.
Námsmat Símatsáfangi og verkefnaskil á hverri önn. Mæting og virkni stærsti þátturinn í námsmati sem og skil á verkefnum.