ENSK3AE05

Áfangalýsing

Titill

Akademísk enska

Námsgrein

enska

Viðfangsefni

Akademísk enska

Skammstöfun

ENSK3AE05

Staða

 

Þrep

3

Einingafjöldi

5

Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla

 

Lýsing

Í þessum áfanga er lögð áhersla á að auka enn akademískan og formlegan orðaforða sem undirbúning fyrir framhaldsnám á háskólastigi og atvinnulíf. Vandlegur lestur sérhæfðra texta ásamt viðeigandi orðaforða. Farið yfir helstu atriði akademiskrar ritunar. Hlustun á fyrirlestra og munnleg kynning verkefna í kennslustund. Alþjóðleg stöðupróf kynnt. Farið yfir enska hljóðkerfið. Eitt klassískt skáldverk lesið. Kennsla fer fram á ensku.

Forkröfur

ENSK2OR05

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • almennum fagorðaforða á háskólastigi.
  • orðstofnum, uppruna þeirra og myndun fagorða.
  • helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða annað mál.
  • alþjóðlegum matsprófum t.d. TOEFL

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikini í:

  • · skilja sér til gagns sérhæfða og fræðilega texta.
  • · greina megininntak texta, rökfærslu og draga ályktanir.
  • · orðmyndun.
  • · nýta sér fyrirlestra og umræður um fræðileg efni.
  • · tjá sig af öryggi um ýmis málefni.
  • · beita ritmálinu í mismunandi tilgangi t.d. með útdráttum, umritun, ritgerð.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér fræðitexta og leggja gagnrýnið mat á hann.
  • umrita og gera útdrátt úr fræðigreinum eða fyrirlestrum.
  • geta flutt vel uppbyggða kynningu eða greinargerð, dregið fram aðalatriði og brugðist við fyrirspurnum.
  • rita texta með röksemdafærslu með og á móti og hún vegin og metin.

Námsmat

Fjölbreytt námsmat – lotupróf.

Útgáfunúmer

 

Skólar

 

Fyrirmynd