ENSK2OR05

Titill

Orðforði og ritun

Námsgrein Enska
Viðfangsefni Orðaforði og ritun
Skammstöfun ENSK2OR05
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 5
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing

Markvisst er unnið með almenna og sérhæfða texta og reynt að byggja upp hagnýtan orðaforða.  Nemendur eru þjálfaðir í skipulegri framsetningu ritaðs máls bæði hvað varðar uppbyggingu og orðaforða. Nemendur fá þjálfun í að vinna að viðameiri verkefnum þar sem efnis er leitað á bókasöfnum, á netinu og í margmiðlunarefni. Menning enskumælandi landa er kynnt á markvissan hátt. Áhersla er lögð á alhliða færni í málinu.

Forkröfur ENSK2OL05/ENSK2HC05
Þekkingarviðmið

Nemandi skal  hafa aflað sér þekkingar og skilnings á:

  • þjóðfélögum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
  • ólíkum viðhorfum og gildum, hvernig þau móta menninguna þar sem tungumálið er notað og geti tengt þau eigin samfélagi og menningu
  • notkun tungumálsins til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins bæði munnlega og skriflega
  • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls, s.s greinamerkjasetningu
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skilja mál sem talað er með mismunandi hreim og við mismunandi aðstæður
  • skilja algengustu orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talað mál
  • taka virkan þátt í samskiptum á viðeigandi hátt og beita málfari við hæfi
  • tjá sig skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér og undirbúið
  • skrifa formlega texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skilja daglegt mál, svo sem samræður og fjölmiðlaefni og skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna
  • tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt
  • lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynntar, átta sig á tilgangi og afstöðu textahöfundar og bregðast við eða tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra
  • taka þátt í skoðanaskiptum og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður og tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt
    • skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig
Námsmat Fjölbreytt námsmat.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd