EFNG1MG03

Titill

Efnisfræði-MG

Námsgrein Grunndeild málmiðnaðar
Viðfangsefni

Nemendur öðlast þekkingu til að velja stál og meðhöndla það á réttan hátt við vinnu sína. Þeir læra að

notfæra sér staðla til þess að finna réttan málm fyrir þau verk sem þeir vinna að hverju sinni. Þeir

þekkja grunnatriði í framleiðslu á járni og stáli, formun þess og mótun, framleiðslu á steypujárni,

steypuáli og öðrum málmum, bræðslu og storknun, eiginleika og notkun, svo og varmameðhöndlun á

stáli.

Skammstöfun EFNG1MG03
Staða  
Þrep 2
Einingafjöldi 3
Tillaga að bókstöfum/tölustöfum skóla  
Lýsing  
Forkröfur  
Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

 - skilgreiningar á járni, stáli, járnsteypu, ryðfríu stáli, áli og öðrum málmum

- járnsteypu, flokka hennar og eiginleika                   

- framleiðsluferli stáls, hvað er gert og í hvaða tilgangi

- uppbyggingu stáls, galla í atómbyggingu og áhrif galla

- kunna skil á hersluaðferðum, skilyrðum og stöðlum

- vinnsluhæfni stáls

- almenna vinnslu stáls, þ.m.t. herslu, suðuhæfni, kosti og ókosti álmelma og ryðfrís stáls

- helstu kosti og ókosti áls og ryðfrís stáls

 

Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

- lesið úr stöðlum

- valið stál, ryðfrítt stál, ál og aðra málma eftir stöðlum og ákveðið hvaða efni hentar best

fyrir mismunandi aðstæður og notkun                       

- sagt til um herslumöguleika

- ákveðið hvort hagkvæmt sé að steypa hlut eða vinna hann úr stáli

- sagt til um áhrif mismunandi álags á efnið

- valið á milli smíðastáls, áls og ryðfrís stáls

Námsmat Námsmat byggist á stöðuprófum, verkefnum og lokaprófi.
Útgáfunúmer  
Skólar  
Fyrirmynd