AVVI3VA07

Áfangalýsing ekki tilbúin skv. nýrri námskrá og því unnið skv. eldri námskrá:

 

AVV 304 Aflvélavirkjun

Undanfari: AVV 202    Samhliða áfangi: VFR222

Áfangalýsing

Nemendur eiga að þekkja uppbyggingu, vinnuferli og virkni aflvéla, geta metið ástand vélhluta og greint bilanir ásamt því að aflmæla og stilla dísilvél.

Áfangamarkmið
Að loknu námi í áfanganum á nemandi að þekkja:
alla helstu hluti aflvéla (ottóvéla, dísilvéla og túrbína) og aflrása í skipum, þungavinnuvélum og orkuverum
uppbyggingu hraðgengra og hæggengra dísilvéla
hlutverk allra helstu hluta í aflvélum og aflrásum skipa og þungavinnuvéla
allan hjálparbúnað og lagnakerfi fyrir aflvélar í skipum og þungavinnuvélum
helstu aðferðir við tíma- og lokastillingu á dísilvélum
helstu aðferðir til að herða og losa bolta við samsetningu og sundurtekningu á vélum og vélahlutum
helstu aðferðir til að mæla slit í hinum ýmsu hlutum aflvéla
helstu gerðir af dælum sem notaðar eru í kerfum aflvéla, bæði á vélunum sem og í þeim hjálparkerfum sem tengjast þeim
helstu aðferðir við að greina bilanir í aflvélum

Að loknu námi í áfanganum á nemandi að geta:
svarað almennum spurningum um uppbyggingu ottóvéla, dísilvéla og túrbína
svarað almennum spurningum um hlutverk helstu hluta í aflvélum og aflrásum skipa og þungavinnuvéla
stillt eldsneytis- og lokatíma á dísilvélum (kveiki- og lokatíma á ottóvélum).
mælt slit á öllum helstu hlutum aflvéla svo sem; bullum, bulluhringjum, strokkum, legum og völum
lýst helstu dælum sem notaðar eru í kerfum aflvéla og metið einstaka hluti þeirra með tilliti til slits og skemmda
valið smurolíur og smurtíma.