Haustannarlok og upphaf vorannar

Fimmtudaginn 15. desember, er prófsýning kl.12.30 -14.00. Nemendur eru hvattir til að hitta kennara, skoða prófin sín og sækja verkefni. Inna opnar kl. 09:00 sama dag og þá geta nemendur skoðað einkunnir sínar þar. Inna verður lokuð þeim sem eiga útistandandi gjöld á haustönn.

Laugardaginn 17. desember er brautskráning sem hefst kl.14. Gestum er boðið upp á kaffi og meðlæti eftir athöfn.

Skrifstofa skólans verður lokuð 23. desember.

 

Opnunartímar skrifstofu milli jóla og nýárs:

Þriðjudagur 27. desember, kl. 10-14.

Miðvikudagur 28. desember, kl.9-15.

Fimmtudagur 29. desember, kl 9-15.

Föstudagur 30. desember, kl. 9-13. 

Skrifstofa skólans opnar á nýju ári þriðjudaginn 3. janúar kl. 9.

Inna opnar kl. 9:00 miðvikudaginn 4. janúar. Sama dag verða töflubreytingar vegna vorannar og hefjast kl.10:00. Aðeins er hægt að breyta töflum þennan eina dag.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl.8.15 fimmtudaginn 5. janúar.