FSu mætir Versló í Morfís

Lið FSu mætir liði Verslunarskóla Íslands í 16 liða úrslitum í Morfís, mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla, fimmtudaginn 19. janúar í húsakynnum Verslunarskólans. Keppnin hefst kl.19. Umræðuefnið er: "Maðurinn er heimskur" og mælir lið FSu með staðhæfingunni. 

Lið FSu skipa þau:

Kristrún Ósk Baldursdóttir
Andrea Victorsdóttir
Gabriel Werner Guðmundsson
Sigdís Erla Ragnarsdóttir.

Nemendafélagið býður upp á sætaferðir á keppnina og hvetur alla til að mæta og taka þátt í að hvetja okkar lið til dáða. Nánari upplýsingar má finna hér á fésbók.