Dansandi krossfiskar

Dimmitantar í heimsókn á kaffistofu kennara.
Dimmitantar í heimsókn á kaffistofu kennara.

Skólinn fylltist af dansandi og trommandi krossfiskum í vikunni. Þar voru á ferð dimmitantar, nemendur sem stefna á að ljúka námi á haustönn. Krossfiskarnir voru systur og bræður Péturs krossfisks sem er besti vinur Svamps Sveinssonar. Krossfiskarnir stigu dans og sungu fyrir nemendur og starfsfólk. Því næst gæddu þeir sér á kjötsúpu með starfsfólki og héldu svo út í óvissuferð. Nú er próflestur tekinn við, en um 65 nemendur hyggjast brautskrást úr námi við skólann. Brautskráning vorannar fer fram laugardaginn 17. desember og hefst kl. 14.

Fleiri myndar af dimmitöntum má finna á fésbókarsíðu skólans